Chrome Extension
WeChat Mini Program
Use on ChatGLM

Krefjandi lífsreynsla og flókin sorg: Að lifa af sjálfsvíg dóttur eða sonar

Tímarit hjúkrunarfræðinga(2024)

Cited 0|Views4
No score
Abstract
Tilgangur Sjálfsvíg eru alþjóðlegt heilbrigðisvandamál og fjórða algengasta dánarorsökin í aldurshópnum 15–29 ára. Reynsla foreldra af því að missa son eða dóttur í sjálfsvígi hefur lítið verið rannsökuð hér á landi. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna reynslu foreldra af því að missa dóttur eða son í sjálfsvígi og þann stuðning sem þeim stóð til boða í kjölfar þess. Aðferð Í þessari fyrirbærafræðilegu rannsókn voru tekin 13 viðtöl við 10 foreldra, sjö mæður og þrjá feður, sem höfðu misst son eða dóttur á aldrinum 17-37 ára í sjálfsvígi. Niðurstöður Fyrir foreldrana var sjálfsvígið krefjandi lífsreynsla og við tók flókin, langvinn og stöðug sorg. Það höfðu verið erfiðleikar hjá sonum og dætrum þátttakenda fyrir sjálfsvígið í öllum tilvikum nema einu, svo sem sjálfsvígshugsanir, sjálfsskaðandi hegðun og tilraunir til sjálfsvígs. Sjálfsvígið kom samt öllum foreldrunum í opna skjöldu og var þeim mikið áfall. Við tók doði og þeir áttu erfitt með daglegt líf, misstu matarlyst, svefn, skammtímaminni, þrek, jafnvægi, jarðtengingu og tengsl við raunveruleikann. Flóknar tilfinningar komu upp hjá þeim öllum svo sem sektarkennd og sjálfsásakanir og áfallið kom mikið niður á andlegri og líkamlegri heilsu þeirra þar sem kvíði, þunglyndi og verkir voru áberandi. Sorgarúrvinnsla hjá foreldrunum tók langan tíma og stuðningur var af misjöfnum toga og mikið undir foreldrunum sjálfum komið að sækja sér stuðning ef hann brást eða þegar frá leið. Áberandi voru vonbrigði gagnvart heilbrigðiskerfinu að ekki var framkvæmt einhvers konar mat á þörfum þeirra fyrir stuðning í kjölfar áfallsins. Ályktun Af niðurstöðum að dæma er nauðsynlegt að koma upp verkferlum fyrir hjúkrunarfræðinga og annað starfsfólk heilbrigðiskerfisins sem styður betur við foreldra sem missa son eða dóttur í sjálfsvígi. Þeir þurfa einstaklingsbundinn stuðning í sorginni og upplýsingar um langtímastuðning og úrræði. Heilsugæslan gæti tekið að sér leiðtogahlutverk á þessu sviði í samráði við viðkomandi aðila.
More
Translated text
AI Read Science
Must-Reading Tree
Example
Generate MRT to find the research sequence of this paper
Chat Paper
Summary is being generated by the instructions you defined